Bónerfréttir
5.4.04
Blessaðar gellur í blíðunni!
Vaknaði við hiksta í krílinu í morgun og sá þá að Loginn var farinn í vinnuna- á bílnum! Dem, það er svo gott veður og ég nenniggi að hanga hérna heima... Hringdi í hann og þá gat hann víst ekki vakið mig áður en hann fór svo hann leyfði mér bara að sofa á mínu græna. Við fórum svo seint að sofa.. vöktum við spil fram á nótt og komum ekki heim fyrr en að ganga eitt. Algjör vitleysa...
Lilja frænka ætlar annars að bjarga mér og sækja mig um hádegi og fara eitthvað með mig að borða. Kannski næ ég að plata hana í kerruvagnaleiðangur...Loginn er búinn að gefast upp í þessum erfiðu pælingum... hann veit ekkert hvað er best og hvað ekki... ég má sem sagt velja;o) (eins og hann hafi haft e-ð um þetta að segja, hehe).
Eyrún er búin að gera 2 tilraunir til að koma í heimsókn til mín og það hefur ekkert gengið- við verðum samt að hittast áður en þau fara aftur... hún nefndi föstudaginn- ég er laus þá. En þið hinar? Linda er náttlega farin austur en þær eru búnar að hittast svo... Anyway.. við getum hist hérna á Hjallabrautinni og gert e-ð sniðugt- ef þið viljið. Just let me know;o) mynd
5.4.04 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka