Bónerfréttir
16.3.04  
Your future occupation by meteoric
Your name
Your future occupationActor/actress
Yearly income$435,876
Hours per week you work5
EducationCollege graduate
Created with quill18's MemeGen 3.0!


Já- ég er greinilega á rangri hillu.... hehehe ekki alveg týpan í að vera leikkona! sæjuð þið mig í anda??

Veðrið er annars bara að gera góða hluti núna maður! Ég held bara að það sé komið sumar! Hitti Siggu fyrir ofan mig áðan og hún var að segja mér að stelpan fyrir neðan mig er örugglega ólétt og líka sú sem er á móti þeim Siggu og Árna... þannig að ef ykkur vantar eitt stk. kríli þá er um að gera að gista eins og eina nótt hérna hjá okkur því það hlýtur að vera e-ð í loftinu í þessu stigahúsi....eða: hættið ykkur ekki í heimsókn ef þið viljið ekki eitt stk. kríli!;o) Þrjár af fimm í sama stigahúsinu!(ská fyrir neðan mig býr einn karl). Ekki slæmt! Þetta þýðir fullt af leikfélögum (þ.e.a.s. ef þetta er rétt).
Anyway... við Loginn erum búin að vera saman í 2 ár í dag! Já... ég veit... ekki lengur. Í dag hefst sem sagt B&L hátíðin og hún stendur til páska því við kynntumst á þessum degi fyrir tveimur árum og eins og þið kannski munið var minns ekkert alltof heilluð... tók smá tíma- en um páskana var ástin kviknuð;o) Við erum þess vegna með svona smá hátíðartímabil í gangi... bara gaman!

16.3.04 skrifaði Bína