Bónerfréttir
15.3.04  
Sælar allar nær og fjær!
Maður er eiginlega eftir sig eftir kræsingarnar í gær maður! Ég held að ég hafi næstum því bara borðað allan tíman sem ég sat þarna í afmælinu! Djí maður! Bregst ekki þegar maður fer til Berglindar! Við Loginn lágum hérna eins og klessur í nýja sófanum í allt gærkvöld á meltunni. Og þar sem sjónvarpið var ekkert spes lágum við hérna og skoðuðum myndir af barnadóti til að setja inn á síðuna hans Loga sem link fyrir krílið. Hehe- erfitt val: hvort eigum við að hafa pela, bangsa, barnaskó eða hvað?? skórnir voru fyrir valinu því einn er bleikur og einn blár (strákur/stelpa?) og ég keypti líka pínupínu litla skó í gær. Ógó sætir. Anyway- Loksins komin opinber síða eftir fjölda áskoranir.
Hvað er annars málið með þetta veður? I like!! fer bara í svaka vorfíling eins og ábyggilega fleiri! Krakkarnir í skólanum eru allt í einu æstir að fara út í frímó- þau voru ekkert að nenna því í rokinu.. Þetta er alveg veður til að fara í bíltúr og kaupa ís og hafa útvarpið stillt hátt ;o) Mér gengur annars vel að koma poppmenningu dagsins í dag til skila til krílisins! Uppáhaldslagið okkar er fuck u, u ho! GEÐVEIKT lag. Gaurinn hefur alveg verið ekki með sjálfum sér af reiði þegar hann samdi textann! Bara við hliðina á sér sko! ;o) Jæja maður er að meika það í bröndurunum...... (allt pabba að kenna) Viss um að Matti hló...
Sé ykkur gellur! Ætla út í góða veðrið!!!!!!
þið farið í sumarskap þegar þið hlustið á: þetta
eða skoðið uppáhald heimsins: mr. Hung!

15.3.04 skrifaði Bína