Bónerfréttir
18.3.04  
Heeeellllúúúúú!
Hvað segist? Ég er sko í NETTU sjokki! Vorum á foreldranámskeiði í gær (sem er bæ ðe vei alveg fráááábært) hjá henni Hrefnu í Magna Mater. Allt í lagi með það-mikið að læra, (maður heldur að maður kunni þetta allt) nema við fengum að horfa á fæðingar.... ÁTTA fæðingar með verkjum, herkjum, útvíkkun, hríðum, og blóði og sársaukaköllum og allt hele klabbet!! Ég sem var í bjartsýniskasti eftir frábæra skoðunarferð á fæðingardeildina á mánudaginn! Mér fannst þetta HRÆÐILEGT og akkúrat ekkert fallegt við þessar athafnir. Þó að þetta séu mamma og pabbi með nýja barnið sitt og bla,bla... var alls ekkert viss um að ég myndi þrauka yfir þessu myndbandi (sem var í heilar 70 mín.) enda var ég með lokuð augun í sumum fæðingunum.... Shit hvað ég kvíði fyrir þessu maður!!! Vantar sárlega huggun hjá ykkur mæðrum!! I´m dying here! Er ekki alveg að kaupa þetta með að maður gleymi sársaukanum þegar barnið er komið í fangið- maður þarf að upplifa hann fyrir það! Það sem reddaði þessu myndbandi var ein bresk 45 ára sem hélt bara að hún væri á breytingarskeiðinu og fattaði ekki óléttuna fyrr en hún var komin 5 mánuði á leið. Þannig að í rauninni upplifði hún bara 4 mánaða óléttu og var sko ekki í sambandi eftir fæðinguna, sem var- ekki til að bæta sjokkið, bara klukkutími. Unglingsstrákurinn hennar fékk fyrstur að halda á barninu og mamman sat með sín hrossalæti og át eitt stk. máltíð! Og var gasprandi þarna í sjúkrarúminu með fullan munninn af mat á meðan krakkinn grét og grét hjá brósa sem hafði aldrei áður haldið á ungbarni! Freeeekar fyndið. En hitt allt var ekki eins fyndið! Hjálp!

18.3.04 skrifaði Bína