Bónerfréttir
29.3.04
Ég er búin að eiga vægast sagt skrííííítinn dag...
Vaknaði klukkan hálf sex alveg sprell... kúrði samt þangað til klukkan hringdi og við fórum á fætur. Eins og venjulega var Logi á undan mér að koma sér framúr og klæða sig.. Mín sat á rúminu og Logi sagði eitthvað sem mér fannst svona líka alveg ÓGEÐSLEGA fyndið. Byrjaði sem sagt í hláturskasti-með tárum og öllu... Nema svo bara hættu tárin ekkert að koma...Ég var ekki alveg að skilja:,,hvað er í gangi? er ég bara að byrja að grenja??" Já, já. Þannig var það! Gat bara ekki hætt! Hugsaði bara um að ég yrði nú að hætta þessu! Var á leiðinni í skólann! Þá fannst mér svo sorglegt að ég kæmist kannski ekkert í skólann og hélt bara áfram... Kallaði á Loga:Var eiginlega ekki farið að standa á sama. Hvað var eiginlega í gangi? Ræð ég ekki við sjálfa mig? Loga brá frekar- hélt að eitthvað væri að eða að ég væri með verki.. Þá fannst mér það svo fyndið: aftur að hlæja... (djísús!). Og aftur byrjaði táraflóðið. Ég segi við Loga að ég haldi að ég sé orðin klikkuð og honum fannst það bara skemmtilegt (ekki mér) og hvatti mig bara til að gráta-þetta væri e-ð sem ég þyrfti bara að losa mig við (hann er nú svo mikið yndi)... Og ég bara gerði eins og hann sagði mér- og komst ekkert í skólann lítandi út eins og crazy woman! Þetta tók alveg 2 tíma og hann var hjá mér og hélt utan um mig þessi elska allan tímann. Ekkert svo leiður yfir því að eiga svona klikkaða kærustu;o)
Fjúh..þetta var sko reynsla í lagi. Ég er bara ekki búin að átta mig á þessu ennþá. Þvílíkt og annað eins! WEIRD.....
Smá svona til að brosa að:
Ég vissi þetta ekki
ótrúlegt!
29.3.04 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka