Bónerfréttir
23.3.04
Borðiði orma frú Norma!!! ;o)
það sem þetta lag kemur manni í dillandi stuð! Fékk mig til að hugsa um að við erum að fara að verða 25 ára... loksins:o/ og fór að spá í hvort við ættum að halda okkur við að halda uppá það svona eins og við ætluðum?? Kannski næsta haust;o) þegar maður verður orðinn drykkjuhæfur(hehe). Anyway.. vildi bara láta vita að ég er ennþá til. Ekki það að ég sé að banna ykkur að halda uppá afmælin ykkar;o)
Maður er bara annars alltaf í sama pakkanum: vinna, hvíla sig, borða og sofa... Fengum lítinn púlla í heimsókn um helgina (2 vikna) og minn bara svaf hjá mér í hátt í klukkutíma! Bara sáttur! Þetta varð alveg til þess að maður getur varla beðið!! Er sem sagt að jafna mig á hryllingsmyndinni;O) Berglind kom til mín í gær og náði líka að hugga mig aðeins... þetta fer bara eins og það fer- þetta er mitt mottó þessa dagana. Það er heldur ekki annað hægt en að vera bjartsýnn í svona glæsó veðri! Og páskarnir á næsta leiti og allt maður! Spurning um hvort maður skellir sér austur.. en Logi nennir því ekki!! Vill bara vera heima og þykist ætla að klára e-ð smotterí sem er alltaf eftir hérna í íbúðinni. Hann vill klára allt áður en barnið kemur því "maður hefur ekki tíma til að vera að dúllast e-ð þegar það er komið í heiminn, maður verður bara í því að hugsa um barnið". Hann er nú meiri dúllan finnst mér. Var að segja við hann að hann verður feginn að hafa e-ð að "dúllast" við í mánaðar orlofi.. En það er nú betra að hafa vaðið fyrir neðan sig: Barnið gæti orðið erfitt og órótt...
Jæja, læt þetta duga í bili.....
P.s. alltaf gaman að sjá önnu hérna;o)
23.3.04 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka