Bónerfréttir
29.2.04  
Jæja, góðan daginn.
Það er nú meira lífið hérna á þessari síðu! En það er svo sem ágætt- þá tekur maður bara frekar upp símann og heyrir í ykkur eða skellir sér bara í heimsókn og sér ykkur þá oftar. Talandi um að sjá ykkur! Hver á að halda næsta saumó? Pikkið í mig ef það er ég... ég man þetta ekki...
Minn er annars bara búinn að hafa það rosa næs í vetrar/veikindafríinu. Búin að fara á grímuball með Berglindi og co... svo fékk ég góða heimsókn frá Lindu og litla bangsa um daginn og er búin að njóta mín alveg þvílíkt! Þetta var ekki eins slæmt eins og ég hélt- mér leiddist ekkert. (Hjálpaði reyndar til að ég hafði bílinn hennar múttu því þau eru í úglöndum). Hálfkvíði fyrir að fara að jobba á morgun... viss um að allt fari í sama farið áður en vikan er liðin... en maður vonar bara það besta. Fór í Kringluna um daginn með Berglindi og Gústa púst og það var nóg til þess að bakið færi í lás... Svo er maður svo vitlaus að um leið og maður finnur ekki fyrir þessu þá fer maður á fullt og gerir einhverja vitleysu- verð bara að muna að fara varlega!
Við skötuhjúin vorum annars að koma úr bústað.. þvílíkt afslappelsi þar! Finnst eins og maður hafi farið í viku frí. Anna hringdi svo í mig í gær og henni leist bara vel á að hópurinn myndi skella sér og skoða bústaðaslotið þeirra Berglindar og Nonna næstu helgi. Þá er bara að tékka á því hvort Skrattinn sé laus. Og hún VERÐUR að vera það því hún komst ekki með síðast! Við verðum bara í bandi með þetta.... Berglind gefur okkur grænt ljós ef Nonniboy nennir...
Jæja sugabeibs;) sé ykkur síðar-

29.2.04 skrifaði Bína