Bónerfréttir
10.2.04  
Jæja góðan daginn í hlýjunni:O)
Ég er að drepa tímann á foreldradegi í skólanum... einhverra hluta vegna hef ég ekki gefið tíma klukkan 12:30 og því er heilt korter laust! Held að ég hafi verið eitthvað að hugsa um að fara í mat á þessu korteri en núna finnst mér það alltof knappur tími! Og þá er ekkert betra að gera en að nýta tímann í að skrifa hér nokkrar línur. Krílið er allavega með tjáningaþörf núna og pikkar í magann á mér eins og á lyklaborð!
Af okkur er annars bara fínt að frétta... maður er búinn að vera í smá bílahugleiðingum en ekki búin að taka endanlega ákvörðun um að skipta um bíl strax... eða: ég er sko alveg búin að ákveða mig- það er bara Logi sem er eitthvað að stressast og vill setja þetta allt upp í excel og pæla rosa mikið áður en hann ákveður sig ;O) Hann er svo ábyrgur þessi elska! Eins gott að hann er ekki eins og ég- þá ættum við aldrei pening.
Svo verð ég að éta ofaní mig að Catan sé leiðinlegt spil... Við tókum það upp á sunnudaginn og Harpa og Guðjón komu í mat og við bara spiluðum og spiluðum fram á nótt! Það var í alvöru bara mjög skemmtilegt! Eiginlega algjör snilld! Og nú erum við alveg orðin húkkt á þessu. Þetta er það eina sem maður hugsar um! Neeeeei ekki alveg... en sem sagt: mæli með því.
Jæja, best að fara að taka á móti foreldrum og klára þetta af... Það er miklu betra að fá pabbana á svona fundi- þeir eru svo ótrúlega líbó... Annað en mútturnar sem eru með nefið oní öllu;o) Nei, nei þetta er ágætis lið.
Sé ykkur púllurassgöt seinna! Catankveðjur:o*

10.2.04 skrifaði Bína