Bónerfréttir
24.2.04  
Jæja blessaðir allir fellowshippers ;o)
Maður hefur nú bara verið hálf manneskja í nokkra daga: ekki nettengd! og ekki mátt fara í vinnuna og allt í volli. Mér er sko búið að drepleiðast og með sjálfsálitið í botni og allt! En svo gat minn heittelskaði lagað þetta loksins og við erum komin í samband við umheiminn.
Við gellurnar (Anna, Matti og ég) fórum í bíó um helgina. Sáum Along Came Polly. Hún var svona lala- fannst mér- er farin að halda að AÐEINS mér finnist hún svona allt í lagi. Allavega eru allir mjög hissa- hafa heyrt að hún sé ógó fyndin og bla. Hún er það alveg..... ég fór bara með væntingar.
Svo fékk minn sko algjört egóbúst í gær á bolludaginn sjálfan!(því ég er bolla) Haldiði ekki að vinkona okkar hafi gefið sér tíma í sinni stuttu utanlandsferð til að kaupa óléttuföt á 6 aukakílóa vinkonu sína!! :O* Og ekkert smá: Gallabuxur(sem við erum bæði búin að míga í af hlátri því þær eru hnepptar með rennilás og bara alveg eins og venjulegar gallabuxur og það er FREEEEEKAR fyndið að horfa á bumbuna í þessu öllu saman- Logi þurfti að taka mynd af þessu og svo að lyfta bolnum og sýna öllum í gærkveldi í bollupartýinu sem við vorum í-það hlógu allir þar líka), já, öööö svo keypti hún rauða æðislega peysu sem ég get notað með eða án bumbu og svo tvenna svarta fína boli sem ég get LÍKA notað með eða án bumbu! Og minns var bara í vandræðum með í hverju ég átti að vera í í gær! Það er alltaf næs. En í alvöru! þessar gallabuxur smellpassa og eru svo ógeðslega fyndnar um leið! verð að setja þessa mynd hingað inn svo allir geti séð. Við skiljum ekki alveg pointið með því að hafa ekki bara efni yfir bumbuna því ALDREI myndi ég fara að girða oní! hahahahaha ég er ennþá að flissa yfir þessu.
AAAAAAAAAHHHHhhhhhh já maður er enn að jafna sig... híhí. This made my day!
Ljósan var nýbúin að skamma mig fyrir að hafa þyngst um 6 kíló á allri meðgöngunni(ég fór strax á netið til að reyna að finna út hvað ég ætti að vera þung og fann eina sem var að spyrja um þyngdaraukningu, hún var komin 26 vikur (ég 24) og hún var búin að þyngjast um 20 KÍLÓ! svo ég bara frussaði á það sem ljósan sagði! really!). Þá er nú gott að eiga brandarabuxur. Ég fæ nú óstjórnleg hlátursköst af öllu saman....
Jæja.. ég held ég hætti núna! Þetta er alltaf svo langt hjá mér núna... sjáumst!

24.2.04 skrifaði Bína