Bónerfréttir
2.1.04  
Helló evríbodí!!
Hvað er að frétta, nýtt ár osolleiðis. Einhver áhugaverð áramótaheit??? Ég ákvað nú að vera ekkert með svoleiðis yfirlýsingar, fellur maður ekki alltaf.....? ;-)
Ég félla alla vega ekki í sálfræðinni.... hjúkk.... var pínnku nervus yfir því. En þetta er bara eina einkunnin sem komin er og ég bíð í ofvæni eftir fleirum.
Vona að Helgunni hafi gengið vel í prófinu í morgun.
Á gamlárskvöld fórum við Viggí pigg frænka á Gaukinn, það var svaka fjör þar. Hittum m.a. Palla (og Magga og Evu sem eru með mér í bekk). Palli alltaf jafn hress og kátur. ÁMS var að spila... nokkuð góðir bara. Kom á óvart hvað það var ekki troðið þarna inní, staðurinn ekki svo stór og allt það, þetta var bara passlega fínt ;-) Var svo komin heim kl 8 um morgunin, orðin svoooo þreytt að ég var alltaf að dotta í leigubílnum.... Er fegin að hann keyrði mig heim en ekki bara út í e-a holu í hrauninu á leiðinni til Keflavíkur eða eitthvað mar.... segi svona var alla vega ekki alveg með á nótunum þarna í bílnum - sko vegna þreytu....
Annars vona ég að allir hafi haft það rosa gott um jólin og áramótin, hvort sem það var í Hafnó, Eskó, Mývatnó eða Danmarkó ...hehehe þar til næst, þetta var Matthildur fyrir hönd Bónerhópsins.... over and out

2.1.04 skrifaði Matthildur