Bónerfréttir
2.1.04  
Gleðilegt ár allir nær og fjær!
Við höfðum það alveg rosalega gott í Steinahlíðinni hjá Möllu og co. Þvíklík snilld svona steinasteik! Ég er alveg ákveðin í því að eignast svona steina! Við vorum með naut, gæs og hreindýr og steikt grænmeti og gratín.........slurb. Skaupinu var gefinn séns eins og venjulega og svo var náttlega mikið sprengt og mikið fjör! Þetta fór reyndar eins og mig grunaði: minns var dræver fyrir Balla bró. Þeir fóru reyndar ekkert langt- á Hraunholt. Við vorum svo bara hjá Möllu í góðu geimi til 3 og þá var minns búinn á því. Heim að sofa!
Maður er annars bara orðinn frekar spenntur fyrir því að allt komist í svona eðlilegt horf og skólinn byrji og svoleiðis... er gjörsamlega búin að snúa sólarhringnum við! Við verðum svo að fara að hittast í saumó og vonandi komast þá ALLAR! hver vill verða næst að halda?
Sé ykkur!

2.1.04 skrifaði Bína