Bónerfréttir
2.1.04
ELLI KERLING.
Nokkuð sérkennilegt hefur gerst.. Skrítin gömul kona hefur flutt heim til mín. Ég hef ekki hugmynd um það hvernig hún fluttist inn né hvernig hún komst inn.. Ég rekst aldrei á hana, sé hana aldrei en hinsvegar alltaf þegar ég ætla að spegla mig þá treður hún sér fram fyrir mig þannig að ég sé bara kerlinguna en ekki mitt guðdómlega útlit..?? Hún stelur líka frá mér..Ég er alltaf að kaupa í matinn, en maturinn hverfur úr ísskápnum grunsamlega fljótt. Ég held að sú gamla ætti að fara að passa sig því hún er orðin nokkuð þybbin. Ég held hún sé byrjuð að átta sig á aukakílóunum en til að líða betur með þau er hún farin að fikta í vigtinni minni til að láta mig halda að ég hafi líka þyngst.
Af gamalli konu að vera virðist hún ansi barnaleg í sér.. Hún er alltaf að stríða mér. Hún fer t.d. í fataskápinn minn og breytir fötunum mínum þannig að þau passi ekki lengur. Hún ruglar líka í pappírunum mínum þannig að ég þarf iðulega að leita af öllu og ég sem er svo reglusöm. Hún hefur líka gert stigann að íbúðinni minni brattari, ryksuguna miklu þyngri og hún er búin að setja súper lím á allar krukkur þannig að ég get ekki losað lokin af þeim.. Það gekk þó alveg um þverbak um daginn þegar hún breytti letrinu á öllum dagblöðunum í ansi smátt letur... Ég sá ekki glóru.. Meiri stríðnin... Svo eyðilagði hún búðarferð um daginn fyrir mér.. Ég ætlaði að kaupa mér smart kjól en þegar ég var komin í hann tróð hún sér framfyrir mig og þið hefðuð bara átt að sjá hve hallærisleg hún var í honum. Ég gat ekki séð mitt glæsilega sjálf fyrir þessari óhræsis kerlingu... Ég er að hugsa um að hanga í ræktinni allt næsta ár.. Ég er alveg viss um að svona gömul kerling nenni aldrei að elta mig þangað.. Hún er samt ansi þrautseig en ég er viss um að eftir að hún hafi elt mig í nokkur skipti þá gefist hún upp.... Kerlingarálkan skal burt...
2.1.04 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka