Bónerfréttir
25.12.03  
Halló halló lömbin mín!
Ég nenni að blogga... var búið að biðja mig um að koma að spila og svo þegar ég settist við spilaborðið var spilið bara fyrir 3-4 og hver var þá rekin í burtu? Ekki Balli, Valgeir eða pabbi.. nei,nei kvenmaðurinn látinn fjúka! Mér er svo sem sama- þetta er e-ð landvinningaspil og ég er alveg löngu búin að ákveða að það sé ekkert skemmtilegt.
Við erum annars búin að hafa það rosa gott! Fluttum heim í Steinahlíðina, svona síðustu "venjulegu" jólin. Það hafa allir verið í svaka jólastuði, þar á meðal krílið! Spörk og læti og ég held ég hafi bara aldrei skemmt mér svona mikið! eða verið eins happí! Þetta er alveg mergjað! Akkúru voruð þið (Berglind og Linda) ekki búnar að lýsa þessu fyrir okkur hinum?? Ég stækka annars svo hratt núna að fólk er farið að spá tvíburum- kannast einhver við það?! En ég stend fast á mínu! Bara eitt kríli takk! Held að það sé alveg nóg. Lillinn fyrir ofan okkur er annars alveg að fara með okkur af stressi núna! Við köllum hann "Litli Skelfirinn". Hann er bara alltaf á orginu og það er ekkert mjög sjarmerandi að hlusta á þessi org og læti- hann gæti líka verið að kenna mínum eitthvað!
Anýway... ætlaði bara að kíkja hérna við á síðunni og stóðst svo ekki mátið að blogga smá fyrst ég hafði tíma.
Sé ykkur síðar og hafið það öllsömul gott!!

25.12.03 skrifaði Bína