Bónerfréttir
4.12.03  
Hó hó hó!!
eru ekki allir í jólaskapi núna?! ég sé samt mest eftir því að snjórinn er farinn- það verður svo ógó dimmt úti.
Minns er nú búinn að fá jólagardínur og dúka í massavís hjá múttu og ætlaði að fara að skreyta hjá mér í gærkveldi en svo nennti ég því ekki. Alveg búin á því að fara svona seint að sofa tvö kvöld í röð. Svo komum við ekki heim fyrr en um níu í gærkveldi því við vorum að dreifa boðskortum í familíuna fyrir morðgátu-afmælið hans Loga og duttum náttlega í ER heima í Steinahlíðinni... Svo þegar við komum heim og ég fleygði mér hérna í sófann þá tók Logi sig til og sótti allt jóladraslið og dreifði því hérna um allt hol- það er sko í sófanum,á gólfinu, símaborðinu, uppá sjónvarpinu og allt í óreiðu. Ekkert raðað sko.... Svo datt honum allt í einu í hug að skreyta hjá sér í vinnunni og fór að klippa út jólamyndir af mjólkurfernum!!!! Já ég er ekki að ljúga... hann meira að segja hellti mjólk úr fernu í KÓKFLÖSKU til að fá fleiri myndir. Ég fór að sofa þegar hér var komið, enda svo yfir mig hneyksluð á þessu öllu saman! Maðurinn var eins og lítið barn- hann skemmti sér svo við þetta allt saman. Svo ætlar hann að teikna barnalega jólamynd og hengja upp í vinnunni (NÝJU vinnunni) og fannst þetta alveg massa fyndið ef einhver myndi spyrja hann hvort barnið hans hefði verið að teikna handa pabba og hann myndi segja: ,,Nei ég gerði þetta". Svo þegar ég kom fram í morgun þá var auðvitað allt eins og eftir sprengju- jóladót út um allt. Svaka skemmtilegt. Og ég sem átti von á vinnufélögum heim eftir skóla! Sem betur fer beiluðu þær... og ég sit bara hérna í draslinu og ætla sko að láta HANN taka þetta til! hehehehe.....
Þessir karlar.....

4.12.03 skrifaði Bína