Bónerfréttir
13.12.03  
Aumingja Keikó gamli.... bara dáinn
Háhyrningurinn Keikó, sem veiddur var við Ísland á sínum tíma og dvaldi í Vestmannaeyjum í nokkur ár, er allur. Svo virðist sem háhyrningurinn hafi fengið bráða lungnabólgu og hann drapst í Taknesbugt í Noregi síðdegis í gær. Að sögn Dane Richards, eins af gæslumönnum Keikós, sýndi háhyrningurinn merki um lasleika á fimmtudag, hann var lystarlítill og daufur og öndunin var ójöfn en sjúkdómurinn ágerðist hratt og um klukkan 16 var Keikó allur. Hann varð 27 ára en meðalaldur villtra háhyrninga er um 35 ár.

Og aumingja þeir sem hafa lagt alla þessa peninga í að bjarga Keikó frá Ameríku og Vestmannaeyjum og allt það .....

13.12.03 skrifaði Matthildur