Bónerfréttir
19.11.03  
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ MATTSKRATT!!!
Ég hlakka mikið til að koma í kvöld og belgja mig út af kræsingum!!! Súkkulaðikaka ala Jói Fel man-nipples og fleira gúmmulaði. (Er að gera hana stressaða- hún sagði í gær að hún ætlaði ekkert að vera að gera mikið fyrir okkur).
En hver haldiði að hafi hringt í mig áðan!!?? KARBÓLÍNAN SJÁLF! Já já hún er enn sprellalive á Laugavatni. Bað að heilsa ykkur öllum og lofaði að hafa samband ef hún kemur í bæinn fyrir jólin. Þá verðum við að hittast á kaffihúsi eða e-ð. Ástæðan fyrir þessari óvæntu, gleðilegu hringingu var að hún ætlaði að plata mig til að leggja fyrir könnun í 10. bekk. Já svona er þetta bara... ekki hringt nema hægt sé að nota mann! Nei, segi svona- bara að grínast elsku Karbó. Ég auðvitað reyni að redda þessu fyrir hana- Anna Stína sem kenndi með mér í fyrra er með umsjón í 10. og ég ræði bara við hana, eða hóta! HVAÐ SEM ÞARF! MÚHAHAHA!!
Anývei. Hlakka til að sjá ykkur í kvöld og borða allar girnilegu terturnar hennar Matthildar (hehe) mmmmmmmmmmmmm bæ!
Frábær auglýsing!!

19.11.03 skrifaði Bína