Bónerfréttir
17.11.03
Jæja gellur!
Þá eruð þið allar komnar inn! EF þið viljið breyta þá er sko mér að mæta! Nei, nei- þá er það ekkert mál, þið verðið bara að finna útúr því sjálfar eða senda til mín eða hringja eða vott ever og ég hugsa alveg að ég reddi því.
Hvað er annars að frétta af ykkur?! Maður heyrir ekki né sér skrifað hvað er í gangi hjá ykkur dúllunum! Heyrði aðeins í Matta í gær og vonandi ákveður hún að bjóða okkur í afmæli fyrst hún er í fríi (geðigt hint!) og þá hittir maður ykkur-flestar allavega. Það fer nú að styttast í Helgu pelgu! Það verður sko gaman. Vonandi verður minn búinn að skríða saman þá- er að verða biluð á þessari ógleði og vanlíðan! HVENÆR ENDAR ÞETTA EIGINLEGA?? Er allavega búin að tilkynna mömmu og pabba að það verður bara eitt barnabarn frá mér ef þetta verður svona! Þau bara hlæja að mér- og það fer sko í geðið.... Aumingja Logi er alveg súper góður við mig en ég get varla kysst hann án þess að æla uppí hann!
Nenni ekki að hugsa um þetta meir... verð að fara að hugsa um að fara að finna mér buxur til að vera í! Get allavega ekki setið í mínum buxum lengur... nema innibuxunum og ekki læt ég sjá mig í þeim úti! Þið vitið hvernig ég er.
Hvað er annars málið með að það sé meira en hálfnaður nóvember?? Rúmlega mánuður í jól! Og það er alltaf sama sagan með mig: ég er ekki enn farin að versla jólagjafir en ætlaði að vera löngu byrjuð. Svo verður Logi 25 ára 9.des. Vesenið! en ég er samt komin með snilldar gjöf fyrir hann! Get ekki sagt það hér - hann gæti lesið...
Svo eru árlegu jólatónleikar með mömmu hennar Berglindar núna í des. Við þangað! og borða kannski áður- ehagi?
Jæja, sé ykkur vonandi á miðvikudaginn! Pjúk kveðjur! Bína BRJÁL
eitt frábært!
17.11.03 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka