Bónerfréttir
27.11.03
Hellúu bonerfélagar
Djö... er asskoti langt síðan maður hefur skrifað hér inn ekki það að ég sé eitthvað geggjað aktív við það. Annars er allt frábært að frétta hérna frá mér og mínum. Eins og sumar ykkar vitið kannski þá er minn tími núna, orðið vel kalt úti og mikið af snjó, ELSKA ÞENNAN TÍMA ársins. Og svo er Tobbi Nilli orðinn svo ótrúlega góður eftir að hann fékk meðalið að ég bara varla trúi því að ég eigi svona gott barn, réttara sagt góð börn þar sem Balli Krummi (hehe hljómar ekki vel að mamman sé að kalla börnin sín gælunöfnum) er algjört ljós þessa og svo góður við bróður sinn. Sé nú ekki mikið af kærastanum núna þar sem törnin í búðunum fer að byrja og hann farinn að vinna allan sólahringinn, fæ þó aðeins að kyssa hann á morgnanna áður en hann fer sem er þó eitthvað en þar sem þetta er einungis tímabundið sætti ég mig við þetta. Jú og svo förum við auðvitað til útlanda í feb, er eiginlega farin að telja dagana.
Talaði aðeins við lasna bumbubonerinn í dag og skammast mín ekkert smá mikið fyrir að hafa ekki komið í heimsókn að skoða nýja híbýlið, en ætla að reyna komast í næstu viku, er allavega að stefna að því.
Svo vill ég þakka formlega fyrir afmælisgjöfina mína sem ég keypti mér um daginn, geggjuð hvít kápa sem ég er svoooo ánægð með, takk fyrir mig tók mig langan tíma að komast að eyða þessu gjafabréfi sem átti fyrst að vera fyrir úr en varð svo kápann(sko THE).
Er nú reyndar smá pirruð þessa dagana yfir því að jeppin er á verkstæði eftir að einhver klessti á Sigga og fengum við bílaleigubíl til að vera á á meðan og fengum Skoda Fabia, algjör púddudrusla sem nánast kemst ekki neitt í. Þegar maður er vanur svo góðu að rétt þurf að brjóta vagnin saman og nóg pláss þá er þetta ömurlegt það kemst nú varla grindinn af vagninum í skottið og þar sem báðir gaurarnir mínir er aftur í þá er ekkert aukabláss. Reyndar var Berglind að segja mér að við gætum farið og beðið þá um að láta okkur fá stærri bíl, en Siggi er að vinna 24-7 og ég nenni ekki að vera fara þarna og heimta stærri bíl. Verð bara að láta mér duga að komast ekkert með vagnin nema gangandi og strætó sem mér finnst reyndar mjög gaman og þæginlegt.
En jæja nóg bull í bili
Linda
27.11.03 skrifaði Linda
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka