Bónerfréttir
13.11.03
Hello ladies!!! Waaazup?
Er bara svona að hanga í tölvunni (næstum bókstaflega, þar sem ég hef ekkert að gera í henni, nema skrifa hér ;-)) Langt síðan maður skrifaði síðast. Látum okkur nú sjá ...hmmm... hvað hefur gerst síðan síðast? Já fór í þetta líka svaka fína innflutningspartý um síðustu helgi. Húsráðendur voru nú ekki í neinum djammfílingi (skiljanlega :-)) en við Annie stóðum alla vega undir nafni. Ég byrjaði reyndar á því að fara í fertugsafmæli til hennar Sýtu sem vinnur með mér, það var voða fínt en fékk svo símhringingu frá Önnu pönnu um að drífa mig á staðinn (held það hafi vantað alla cd-ana mína ;-) sem by the way eru enn hjá Brjál). Ákvað þá að "kósý afmælisstemmningunni" skyldi dömpað og dreif mig í partýið ("kósý afmælisstemmningin" varð víst "partý afmælisstemmning" þegar leið á kvöldið!! Alla vega hjá Dísunum tveim, það er Ásdísi og Vigdísi. Eins gott að láta það fylgja;-)). Svo var bara brunað í bæinn (vorum náttlega síðastar úr partýinu). Þar var fyrst hangið í röð í ca 30 mín. af þvi Ásdís vildi endilega fara inn á Hverfisbarinn, þar inni var ansi troðið og ekkert mjög gaman. Fórum því á e-n nýjan stað sem heitir Pravda (held ég, er þar sem Astro var) og var það mikið skárra. Þar var samt mest drukkið og spjallað, pínu dansað. Hittum þar Önnu-Gunna og Bigga vin hans. Var svo komin heim um kl 5, og undir sængina góðu því vinnan beið kl 12 á sunnudaginn.
Svona var síðasta helgi (örugglega síðasta djamm fyrir próf).
Síðustu dagar eru að mestu búnir að fara í enn eitt hópverkefnið - ritgerð - held hún sé nú að fara að smella saman hjá okkur.
Er nú að fara að jobba, bið að heilsa ykkur öllum, músalúsirnar mínar :-* MS
13.11.03 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka