Bónerfréttir
25.11.03
Fær mann til að hugsa.... Ég fór í partýið mamma, ég mundi hvað þú sagðir,
ekki drekka og keyra, svo að ég fékk mér bara gos.
Ég var stolt mamma eins og þú sagðir að ég mundi verða, ekki drekka og
keyra þó að vinir mínir vilji það, ég tók heilbrigða ákvörðun mamma og þínar
ráðleggingar voru réttar.
Þegar veislan var loks búin, settist ég í bílinn minn, örugg um að komast heil heim.
En það sem gerðist mamma var það sem ég reiknaði síst með, nú ligg ég hér í
götunni mamma og heyri lögguna segja: strákurinn í hinum bílnum var fullur undir stýri.
Mamma rödd hans er svo fjarlægð, ég er öll út ötuð í blóði mamma, en ég reyni að gráta ekki,
ég heyri sjúkraliðana segja: stelpan á ekki mikið eftir.
Ég er viss um að strákurinn pældi ekkert í þessu á meðan hann var undir áhrifum,
því hann valdi að drekka og keyra. Mamma er ég að deyja? Af
hverju gerir fólk þetta mamma? Vitandi að það getur eyðilagt líf.
Ég finn svo til mamma, það er eins og að ég hafi verið stunginn með
óteljandi hnífum.
Segðu systur minni að vera ekki hrædd mamma, segðu pabba að vera hugrakkur og
þegar ég fer til himna mamma viltu þá skrifa á legsteininn: Stelpan hans pabba.
Bara ef hann hafði ekki keyrt fullur mamma, þá væri ég enn á lífi.
Ég á erfitt með að draga andann mamma, ég er svo hrædd, þetta er mín hinsta stund,
en ég er ekki tilbúin mamma.
Ef ég gæti bara haldið utan um þig elsku mamma mín. Ef ég gæti haldið í hönd þína mamma á meðan ég dey.
Mamma mín ég elska þig. Bless.
Skilaboðin eru skýr, ekki keyra undir áhrifum....
Dálítið sorglegt ha...
En hvað segir liðið? Allt fínt. Vonandi gekk þér vel í prófinu í gær Anna mín, er nokkuð viss um það eftir allan tíman sem hún er búin að leggja í þetta. Vonum það besta!!
Ekkert að frétta af mér svo sem... bara að dúllast. Ætti nú að vera að semja lokaræðuna mína í tjáningu, er komin með 4 min af 8! Á að skila henni á videospólu á föstudaginn, Spennóóó!!! Nenni því bara ekki, er komin með ofnæmi fyrir tjáningu :-) Var einmitt að hitta hópinn minn tjáningu áðan og þá kom í ljós að við erum búin að týna hluta af vinnubókinni sem við eigum að skila í næstu viku :-( Held að við verðum ekki mjög lengi að laga það en samt.... Svo eru bara prófin í næstu vikur :-/ maður verður að fara að læra eitthvað af viti, ekki þetta hangs alltaf í tölvunni ;-) Jú ætli maður kíki nú ekki við... held það nú!!
Jæja er eitthvað farin að bulla hér ...seeyaguys!!
25.11.03 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka