Bónerfréttir
23.10.03  
Sælir kæru bónerfélagar.
Nú er starfsdagur í Lækjarskóla og minns er bara hálfur maður því Kristín er veik og þá er lítið hægt að gera.... hún er nú búin að vera að fjarstýra mér svoldið en það er voða erfitt að vera að skipuleggja heila önn í gegnum símann... svo ég er bara búin að gefast upp og læt þetta nægja í dag. Búin að gera mitt og get ekki gert mikið meira. Helv.. súrt samt þegar svona dagar fara til spillis. Maður kemur nefnilega heilmiklu í verk á þessum dögum og þeir eru alveg bráðnauðsynlegir- þrátt fyrir óánægju foreldra.
En nóg af þessu væli. Maður bíður bara þvílíkt spenntur í dag! Það á nefnilega að skíra ("skera" ala Baldvin) lillann í dag. Linda segir tvö nöfn út í loftið en ég spái að það sé Þorbergur! Seeegi svona... Maður þarf alltaf að vera spá og spekúlera og hefur alltaf rangt fyrir sér. Við Beggý kíktum aðeins á snáðann í gær því hún vildi nú fá að sjá barnið áður en það fengi nafn... Hann er auðvitað ennþá jafnsætur- ef ekki sætari og ekta Þorbergur! Nei, ég skal hætta þessu núna. Þetta kemur allt í ljós á eftir.
Svo er bara að koma helgi og minns er að vinna svo að það verður því miður ekkert innflutningspartý þessa helgina:o( Líkurnar eru samt góðar fyrir þarnæstu helgi.... Læt ykkur bara vita þegar nær dregur;O) Það verður sko fjör! Heldur betur langt síðan maður hefur hellt í sig og skemmt sér ærlega. Matta finnst það sko vera ár og dagar!
Jæja, sé ykkur bara....

haldið ykkur í nærunum stelpur!
Góður! ég sprakk úr hlátri!
skemmtilegar staðreyndir

23.10.03 skrifaði Bína