Bónerfréttir
9.9.03
Nei en gaman að heyra í Lindu!! :-) Það er að fara að styttast í að litla krílið fari að banka upp á, ég er alla vega orðin obboslega spennt :-) Annars er ekkert annað að frétta af mér en bara skólinn skólinn og aftur skólinn. Hef lítið annað gert síðan hann byrjaði. Nú er það bara líffæra og lífeðlisfræði, þroskasálfræði og uppeldisfræði sem á hug minn allan :-) Sigið bara börnunum á mig, er alveg komin með þetta allt á hreint (sko hvernig á að siða þau til, ef það þarf ;-)) Seeeegi svona. Er svo í tjáningu og mál- og ritþjálfun, svaka fjör!!!
Nú held ég að við séum bara allar í skóla, aldrei þessu vant!! Bína líka sko, hún er nú alltaf í skólanum ;-) Ætlarðu að verða eilífðarstúdent??? :-)
Hef greinilega ekkert sniðugt að segja, bið að heilsa ykkur öllum og öllum þeim sem koma í heimsókn á síðuna (virðist vera orðin rosalega vinsæl!!)
Kveðja, MS
9.9.03 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka