Bónerfréttir
8.9.03  
Jæja loksins loksins lætur maður heyra í sér :)
Er nú ekki sú duglegasta við að skrifa á svona síður en maður verður samt aðeins að sýna lit þó seint sé. Hef annars voða lítið að segja er gjörsamlega að springa núna og að verða frekar þreytt. Var búin að fá leiðbeiningar um einhverja kynlífsstellingu sem á víst að svínvirka og koma manni af stað þannig ég hugsaði mér nú að það væri mjög gott að drífa sig í að prófa hana þar sem það er svo lítið að gera hjá Sigga núna og nánast allt orðið tilbúið fyrir litla bumbubúan. Allavega var ég búin að plana að prófa þessa tækni í gær og beið spennt á meðan Siggi var að svæfa, en nei það er nú ekki eins og ég hafi verið að biðja um eitthvað rosalega mikið, þessi karlmenn eru gjörsamlega ónýtir hann SOFNAÐI!!!!!!! þannig mín endaði bara að horfa á imbann og borða nammi ein í gær.

En það er aldrei að vita kannski maður láti reyna á það kvöld hef samt svolitlar áhyggjur af því hvort maður eigi eitthvað að vera rugla með dagsetninguna um það hvenær barnið eigi að koma. Svo getur vel verið að þetta virki ekkert líka þar sem ég er ekki alveg fullgengin eða er núna komin 38. vikur.

Fór í fyrsta tíman minn í dag í Háskólanum og það tók mig hvorki meira né minna en 15 mín að finna stæði þarna hjá Eirbergi, maður verður sko heldur betur að vera tímalegur þar djö... geðveiki er þetta. En þetta var bara fínt á svo að fara í tíma á morgun en er að fara með Baldvin Hrafn í þroskapróf akkúrat þegar tíminn á að vera en ég held að það sé enginn gífurlegur missir.

En allavega læt ykkur svo vita ef eitthvað gerist næstu daga hjá mér
Linda

8.9.03 skrifaði Linda