Bónerfréttir
15.9.03
Jæja kæru bonerfélagar
Nú fer þetta að styttast hjá okkur en ekkert farið að gerast en :( En ég er samt pínu fegin samt ekki mikið því að ég verð eiginlega að geta mætt í skólan á mánudaginn til að finna mér félaga fyrir verkefnin sem þarf að skila í Þroski barna og unglinga. Hef annars lítið að segja. En ég frétti frá Önnu Maríu að Matti Skratti væri bara komin á nýjan bíl TIL HAMINGJU!! En ég áttaði mig á því hvað ég er búin að vera í litlu sambandi við ykkur hinar því Anna var þvílíkt hissa að hún væri að segja mér þetta. Þannig ég lagði til við Berglindi í kvöld að við ættum að reyna að hittast á fimmtudaginn og fara á kaffihús. Mér er farið að dauðlanga að komast aðeins út á lífið (þetta er það mesta sem ég þoli að fara út á lífið). Hvernig líst ykkur hinum á sem eruð á landinu.
Þetta var nú meiri veðurblíðan í dag. Ákvað að mæta verulega snemma upp í Eirberg í dag svo ég myndi frá stæði og mætti alveg með 45 mín fyrirvara og fékk mér göngutúr um hverfið þarna í kring og jé minn eini ég var að leka niður. Ákvað því aðeins að tilla mér hjá Hallgrímskirkju og varð fyrir geitungaáras en var sem betur fer ekki stunginn en ég hélt ég myndi aldrei losna við hann.
Jæja hætt í bili og farin að knúsa karlinn
Linda
15.9.03 skrifaði Linda
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka