Bónerfréttir
30.9.03  
Halló halló!
Yes! búið að flísaleggja forstofuna og eldhúsið og helminginn af baðinu! Þetta er sko allt að koma... við fáum parketið á morgun og svo verðið þið allar bara að fjölmenna og koma og þrífa pleisið! Við ættum því að geta flutt inn næstu helgi en við ætlum að taka því bara rólega (hehe frekar öfugsnúið miðað við lætin alltaf í mér-þetta gengur aldrei of hratt og bla bla) sérstaklega því ég er að vinna næstu helgi... :O( nenni ekki að vera að jobba og koma okkur fyrir allt í einu... við verðum að fínisera þetta næstu vikuna- setja upp ljós og svoleiðis...
Loksins er Linda of line og vonandi bara að rembast as we speak! Annars er voða lítið að gerast annað en að mála og mála eins og matti segir, en ég hef nú alltaf tíma til að taka á móti forvitnum gestum... það er bara gaman. Þið hinar sem eruð ekki á landinu verðið bara að halda áfram að fylgjast með gangi mála á síðunni hans Loga Held að hann sé ennþá að setja inn nýjustu myndir... alla vega síðast þegar ég vissi..
Jæja, sjanst flottur bónerbíll!!

30.9.03 skrifaði Bína