Bónerfréttir
12.9.03  
Hæ hæ alle sammen!
Loksins kominn föstudagur! Nei nei vikan hefur verið alveg ótrúlega fljót að líða. Nú erum við finally búin að fá íbúðina og höfum eytt þar síðustu tveimur kvöldum. Sjáum fram á að við verðum þarna líka næstu kvöld svo að ef einhver þarf að finna okkur þá veit hann hvar við verðum. Reyndar er ég að vinna á DAS laugardags- og sunnudagskvöld:o( Var að hringja í pabba og Balla bró- þeir eru búnir að eyða morgninum í að brjóta niður vegg á milli eldhúss og stofu og við erum að fara á eftir að þrífa eftir þá og reyna að skrapa meira... hörkufjör í þessu. Þetta er alveg ótrúlega gaman maður með músík og bjór.... Matti skratti er búin að bjóða sig fram og ég ætla að hringja í hana á eftir og taka hana á orðinu. Svo mega auðvitað allir kíkja á allt draslið...
En þá að alvarlegra máli.... HVER ER DÓRI HÖNK?? ég nota baaaara netið í skólanum og allir heima eru saklausir. Ef ip talan er sama og mín þá er þetta einhver í skólanum eða hvað?? alla vega: The mistery remains..... og við sem héldum að þetta væri leyst (ég, Helga og Eyrún) ekki góðir spæjarar það....hmmmmmm.........

12.9.03 skrifaði Bína