Bónerfréttir
5.9.03
Guten tag!
Hvað segist? Minn er að missa geðheilsuna yfir þessum blessaða leigjanda. Hann er bara farinn útúr bænum vegna vinnunnar og veit ekki hvenær hann kemur aftur! Einhvern tímann í næstu viku: þriðjudag eða miðvikudag! En ljósi punkturinn í þessu er að við erum með dagsektir á hann og hann þarf að borga fullt fyrir þennan roluskap! hehehe það þýðir ekkert annað.
Annars er bara allt gott að frétta svo sem. Maður er bara í skólanum og fullt að gera. Ég er alveg í skýjunum yfir englabekknum mínum. Þetta er nú ljúft líf. Mér finnst líka frábært að ráða mér nokkurn veginn sjálf alltaf eftir hádegi. Bara einstaka fundir og svo er maður bara að dúllast hérna í stofunni og dúdderídú. Fer alltaf heim um 4...... Þetta gæti ekki verið betra.
Jæja, þið heyrið líklega frá mér og mínum bráðlega þegar við þurfum að fara að skrapa og mála... híhí. nei,nei seeeeegi svona.
bæjó - Þjáumþt!
5.9.03 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka