Bónerfréttir
27.9.03
God dag!!
Hvað segir fólkið, allir hressir? Ég var að horfa á FH-menn tapa bikarúrslitaleiknum fyrir ÍA :-( Voru ansi nálægt því stundum að skora (ekki það að ég hafi eitthvað vit á þessu ;-))
Við bíðum enn spennt eftir fréttum af Lindu og Sigga og lillanum þeirra, ætlar ekkert að fara að láta sjá sig. Ætlar að taka fordæmi stórabróður :-) ekkert að flýta sér.
Hef annars lítið séð af þessum vinkonum mínum, hver að gera sitt í sínu horni :-) Linda náttlega bara bíður og bíður, Bína bara málar og málar, Anna reiknar og reiknar osfrv. Ágætt að hafa nóg að gera, þá er tíminn svo fljótur að líða. Pælið í því að það er strax komin helgi (sem er svo því miður alveg ótrúlega fljót að líða líka).
Jæja nú bið ég ykkur bara vel að lifa, hvort sem þið eruð í Breiðholti, Danmörku eða Norðurbæ!!!
:-* Matthildur
27.9.03 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka