Bónerfréttir
29.8.03  
Jæja góðir hálsar!
Verð að segja það að það er ekki hægt að vera svona í sumarfríi frá netinu- ég er búin að vera á fullu bara að ná öllu sem hefur verið skrifað og fara í gegnum póstinn minn og svoleiðis..... en það er samt alveg nauðsynlegt að taka sér smá frí frá tölvunni og pústa smá.
Anyway, skólinn er byrjaður hjá okkur litlu krökkunum og af fullum krafti. Það dugar sko engin leti hér. En guð minn góður hvað það munar miklu á að vera með 7 ára krakka!!! ó mæ god! Allt annað líf og mín er sko spennt að mæta í skólann á hverjum degi. Reyndar er þetta ansi stór bekkur en þá er bara meira fjör....Þetta eru allt svo miklar dúllur.
Núna fer óðum að styttast í að við skötuhjúin fáum íbúðina og byrjum að setja hana í stand. Get ekki beðið! Mamma og pabbi vildu samt helst hafa okkur lengur heima en Balli bróðir er orðinn eins og gamalmenni í bakinu að við verðum að fara að flytja. Gerum það bara til að redda Balla gamla hehe;o)
Bið að heilsa ykkur í bili.... Sjáumst í næsta saumó! ALLAR! híhí Hugs :o*

29.8.03 skrifaði Bína