Bónerfréttir
25.8.03  
Hallóóóó!!!
Djö... er langt síðan maður kom hérna við, þetta gengur ekki lengur ;-)
Gaman að fylgjast með ykkur sem eruð flutt frá okkur til Danmark :-) Allt gengur vel sýnist mér. Og nú eru Helga og Björninn farin líka. Hafið það nú sem allra best í Danmörku.
Annars er ekkert nýtt að frétta af mér, er alltaf að bíða eftir stundatöflu fyrir skólann. Skil ekkert í þessum seinagangi!!
Við fórum á myndina Pirates of the caribbian í gærkvöldi, mér fannst hún geðveikt góð. Mæli sko alveg hiklaust með henni fyrir ykkur sem ekki hafið séð hana, Johnny Depp er ógó góður í henni maður!!!!
Jæja klukkan að verða 12, best að fara að klæða sig (svona er það að vera endalaust í sumarfríi... :-))
Bið að heilsa, MS

25.8.03 skrifaði Matthildur