Bónerfréttir
11.7.03  
Já já, góðan daginn!!
Minns var bara að skríða inn úr ferðalaginu :-) Fór með vinnunni í "sumarbústað" (var reyndar fullbúið einbýlishús með aðstöðu fyrir fatlaða) á Flúðum. Vorum þar í fjóra daga, fjórar með gengið úr Steinahlíðinni, svaka fjör. Höfðum það voða næs og ferðuðumst um sveitna. Kíktum í dýragarðinn í Slakka sem var alveg frábær. Hef sem sagt aldrei komið þangað áður en þar voru fullt af dýrum sem hægt var að klappa (þar á meðal geðveikir páfagaukar, risastórir og flottir). Mæli með honum fyrir barnafjölskyldurnar, kæmi mér reyndar ekkert á óvart þó að þær væru búnar að fara þangað þar sem hann er þarna í nágrenni við sumarbústað Beggýar (í Laugarási reyndar, sem er smá spotti). Svo kíktum við á Sólheima í Grímsnesi og það var frábært, ekkert smá sætt allt saman hjá þeim og sniðugt :-)
En ég er sem sagt komin heim, dauðþreytt af svefnleysi og öðru ;-)
Er sammála Helgu að það væri nú gaman að heyra eitthvað frá einhverjum!!
P.S. Frábært að heyra, Helga, að þú er á leiðinni, hlakka til að sjá þig
Kv. Matthildur

11.7.03 skrifaði Matthildur