Bónerfréttir
30.6.03
Já já, greinilega langt síðan ég kom hingað síðast, á blogger það er að segja, bara nýtt lúkk og alles!!! Loksins heyrist í þeirri dönsku :-) Búin í prófum, hefur sem sagt ekki drukknað í lestrinum - gott að vita að þú ert á lífi ;-) Annars hefur ekkert heyrst í neinum leeeeengi á þessari blessaðri síðu (þar á meðal mér :-(), eitthvað mikið að gera hjá bónerum þessa dagana.
Ég er svo sem bara að vinna og vinna og svo er svona smá ölþamb inn á milli (ekkert samt til að hafa áhyggjur af :-) Nema þá að sé kannski of lítið þar sem það er nú suma og sól í heiði!!! ;-)) Annars átti nú að vera blíða hér um helgina en eitthvað hafa veðurfræðingarnir látið veðurguðina plata sig því það rigndi eins og hellt væri úr fötu á laugardaginn og svo var skýjað og skúrir á sunnudaginn :-( Og við sem vorum búin að ákveða að skella okkur í útilegu, við Bína sko. Logi bara gleymdi að vekja okkur eftir jammið á laugardaginn ;-) Vorum semsagt búnar að ákveða það að skella okkur í útilegu á laugardaginn (var ákveðið kl 3 aðfaranótt lau) ef við myndum vakna á skikkanlegum tíma, en auðvitað var þetta bara fylleríisbull (þó okkur hafi verið fúlasta alvara þá!!!) Þannig að það var bara hangið heima um helgina, og INNI sökum rigningar!!
Jæja var að koma úr bodypump tíma og á eftir að fara í sturtu, svo best að drífa sig í því svo maður komist í vinnu!!!
Heyrumst, MS
30.6.03 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka