Bónerfréttir
19.6.03
HALLÓ!!!!
Loksins loksins virkar tölvan aftur, þetta er endalaus vitleysa með þessa blessuðu tölvu okkar. Ef það er ekki netið sem virkar ekki þá er hún sjálf eitthvað biluð, sem hún var núna!! Endaði með að splæst var í nýja og vonandi gefur hún ekki upp öndina líka. Alveg ómögulegt þegar búið er að gera svona tölvunörd úr manni!!! :-) Annars er allt fínt að frétta, hef ekki hitt neinn SVOOOO lengi, held það sé verið að plana einhverja kaffihúsaferð í kvöld. Er það enn í gangi eða???? Jæja vildi bara láta fólk vita að ég er enn á lífi og ætla að reyna að bæta upp glataða tíma, hér á netinu, næstu daga ;-)
Við heyrumst síðar c",)
19.6.03 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka