Bónerfréttir
18.6.03  
Halló allir saman!
Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða!! Ég bara næ þessu ekki.... Ég hef svo sem ekkert merkilegt að segja- er bara að drepa tímann. Er að bíða eftir mat og svo á að fara að éta nammi hjá Berglindi (ef ég þekki hana rétt þá á hún alveg örugglega nammi í skál). Við gömlu, gömlu vinkonur erum að fara að hittast, bara svona eins og við gerum stundum... sem minnir mig á það - hver á eiginlega að halda saumaklúbb??? Eða er kannski bara komið sumarfrí? seeeeegi svona. Væri alveg til í að fara að hitta ykkur allar...
Jæja, farin að eta..... Leiter ;o)
p.s. (til tölvunördsins ;o)): ég ýtti á post & publish takkann en það tekur greinilega bara stundum tíma til að birtast á síðunni.....

18.6.03 skrifaði Bína