Bónerfréttir
26.5.03
Jæja góðan daginn!
Mikið svaaaakalega er langt síðan maður hefur látið heyra í sér hér á þessari síðu! Það er bara búið að vera alveg nóg að gera í flutningum og djammi.... Við erum núna loksins orðnir Hafnfirðingar og mér finnst það alveg æði. Hér á maður sko heima!
Gerðist svoldið óþægilegt áðan: Minn er bara í sinni vinnu í rólegheitum og kem niður í stofuna mína eftir löngu frímínúturnar. Er þá ekki bara ein mamman mætt á svæðið og vill endilega sitja inni í stofunni og fylgjast með, bara svona til að sjá. Litla ég sagði bara auðvitað, ekkert mál, en samt hugsaði ég: shit! Þetta er svo sem alveg yndisleg manneskja og ég get alveg hugsað mér aðra sem ég hefði sko alls ekki viljað fá inn í stofu til mín. En samt..... frekar óþægjó. En svona er þetta bara. Maður má ekki segja nei, þetta er fullkominn réttur foreldra. Hún sagði mér svo að hún vildi koma aftur en ég sagði að það gæti truflað því við erum að fara í próf og svoleiðis en í rauninni má ég ekki neita henni/foreldrum að koma og fylgjast með. Mér finnst þetta svoldið asnalegt að maður hafi í raun ekkert um þetta að segja- en svo finnst mér þetta alveg frábært líka: að einhver hefur svona mikinn áhuga á því að fylgjast með skólalífi barnsins síns. Svo getur maður líka hugsað að kannski er fólk að fylgjast með annarra manna börnum en ekki sínu eigin........... bara smá hugleiðing!
Anyway... ég ætlaði bara að skrifa hér inn og láta vita að það eru komnar júróvisjonmyndir úr þessu líka frábæra partýi Hlínar og Jóa! Njótið vel!!!
26.5.03 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka