Bónerfréttir
17.5.03  
Howdy ho!!!
Hvað segir liðið, bara fjör?? Langt síðan maður hefur kvittað fyrir sig hér, skil þetta barasta ekki!! :o)
Bara komin gestabók og alles, heldurðu að það sé!!! Þetta er að verða alvöru!
Annars kom ég bara við til að segja hæ, get ekki stoppað lengi. Til hamingju með að klára prófin, þið sem eruð búnar, og hinar verið dúlegar þetta hefst á endanum ;o)
Get ekki sagt að ég hafi tekið eftir miklum breytingum á síðunni (fyrir utan gestabókina og ég veit að hún telst ekki með) Eyrún viltu endilega koma með svarið við quizinu fljótlega and put me out of my miseries (hvernig sem það er skrifað ;o))
Snillingurinn ég var að bera á mig brúnkukrem, sem við Bjössi keyptum okkur í gær, og nú er mín bara öll flekkótt. Ekkert illa/hræðilega flekkótt, bara nóg til að ég geri þetta aldrei aftur :o) .....Jú jú ég á eftir að gera þetta aftur, verð nú að æfa mig í þessu (allt partur af því að vera bjútíkvín (fyrst maður hefur gefið ljósabekkina upp á bátinn)) maður er bara eins og Picasso listaverk - það er nú ekkert svo slæmt, hann varð alla vega fægur!!! Ehagi??
Jæja ætla nú að hætta þessu bulli og fara að gera eitthvað gáfulegt, horfa á fréttir eða bletta í með brúnkukreminu ;o)
Síja, DB

17.5.03 skrifaði Matthildur