Bónerfréttir
12.5.03  
Halló allir stórir og smáir! Gvöð hvað ég get ekki beðið eftir sumrinu... Þó það verði náttúrulega brjálað að gera hjá manni, en samt... alltaf gaman að fá sumar. Ég veit ekki með ykkur en ég á allavega auðveldara með að fara á fætur þegar það er komin svona sól og blár himinn....
Díses! ég sit hérna við tölvuna og er að reyna að finna e-ð að skrifa um en dettur ekkert í hug... jú eitt! Hverjir ætla að mæta í júróvisjonpartý til Hlínar??? vonandi sem flestir því það er kominn tími á að við gerum e-ð skemmtilegt öll saman. Er það ekki?
Nýjasta nýtt er að það á að verða sólmyrkvi 31. maí, en bestu skilyrðin verða á Ísafirði... við hljótum samt að sjá e-ð hér fyrir sunnan- vona ég. Maður hefur samt séð sólmyrkva... var það ekki ´99? held það bara. Við Matti vorum úti í Norge. Notuðum 3 pör af sólgleraugum til að geta séð. Það var flott....
Jæja ætli ég hætti þessu bulli ekki bara. Læt fylgja með nokkra brandara af því að maður hefur svo gott af því að brosa. (minnir mig á það að við vorum að mæla brosið okkar í stærðfræði í dag og mitt bros er 7 cm. Prófiði að mæla ykkar! Mæli með því. Það er svoldið fyndið að standa og brosa eins og auli framan í spegilinn með reglustiku í fésinu ;)

Svoldið vandræðalegt

Sumir fíla alltaf kúkabrandara Þetta er nú svoldið fyndið (hí hí) (og ógeðslegt) ýtið að rauðu og svörtu örina til að sjá fleiri útgáfur.

Og að lokum: Ef ykkur langar að sjá ykkur gamlar!

12.5.03 skrifaði Bína