Bónerfréttir
14.5.03
Halló allir saman. Ég var að spá hvort það væri ekki alveg ógó sniðugt að setja hérna gestabók! Þá getum við séð hvort einhver sé að kikka á bullið í okkur og það væri líka gaman að fá kannski einhverjar kveðjur... Bara svona hugdetta (sem Eyrún getur reddað ;o))
Þið hafið kannski tekið eftir því á msn-inu að Loginn er ekki lengur logihelgu, heldur: 3ja herb. íbúð laus til leigu í júní.. Já við erum í smá vandræðum því leigjendurnir okkar eru bara allt í einu að fara að flytja og okkur vantar þá nýja leigjendur í sumar. Ef þið vitið um eitthvað sómasamlegt fólk sem bráðvantar húsnæði í eins og 3 mánuði þá endilega bendið þeim á okkur..... Helv... vesen. Annars værum við meira en til í að flytja bara sjálf inn en buddan segir nei.
Eeeeen bara 3 mánuðir eftir og þá er það bara skrapa, mála, flísaleggja og parketleggja..... spennó!
Svona að lokum..... eins og alltaf (hehe eruð þið nokkuð orðnar þreyttar á mér?:o)) Svoldið sem ég rakst á..... maður verður að passa sig á myndavélunum!!! mæli með að skoða allar myndirnar
Lov jú gæs!
14.5.03 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka