Bónerfréttir
17.5.03  
Halló alles!
Þetta er nú búinn að vera skemmtilegur laugardagur! Sólin skein þegar ég vaknaði og eftir að hafa farið í sturtu og setja upp andlit o.s.frv. hringdi Anna panna og spurði hvort ég væri reddí í bæinn með henni og Matta. Ég hélt það nú og dreif mig af stað. Fékk á mig svaka flottar gellubuxur og Anna keypti sér geðveikan kjól sem hún ætlar að vígja í kvöld með Gunna beib. Þau voru að fara e-ð flott út að borða og svo á ball á Broadway. Við skemmtum okkur alveg konunglega yfir aðförunum hennar Önnu í mátunarklefanum í Zöru þegar hún var að reyna að koma sér í flotta kjólinn!! Þurftum auðvitað að ímynda okkur líka hvernig Gunni færi eiginlega að því að klæða hana úr honum í kvöld... hmmmmm ;o) Á endanum reddaði Matti henni úr (og reyndar í líka) og þar með var það ákveðið að ef Gunni lendir í vandræðum með herlegheitin má Anna hringja í Matta og hún reddar þessu strax því hún ætlar að vera standbæ í kvöld (svona eins og bakvakt).
Eftir að hafa mátað og mátað fórum við svo á TGI Fridays því við sáum það að við þurfum alveg að bæta á okkur nokkrum kílóum til þess að passa í minnstu stærð í Zöru, fengum okkur dýrindis máltíð og kjöftuðum og kjöftuðum.....
Eftir þetta allt saman fór ég og hitti Flameboy í Listasafni Reykjavíkur og skoðuðum við þar útskriftarverkefni nema úr Listaháskólanum. Ég mæli stórlega með þessari sýningu. Hún var alveg frábær!! Sniðugir svona næstum útskrifaðir listamenn (það á að útskrifa næstu helgi). Það sem gerði þessa sýningu svo frábæra líka var að vinur hans Flame á verk þarna og hann var svona guide fyrir okkur. Alla vega þetta var alveg svaka flott.
Svo drifum við skötuhjúin okkur heim eftir að hafa rölt aðeins í bænum í góða veðrinu og farið í mjólkurbúðina og Kolaportið (sem er bara alltaf upplifun útaf fyrir sig...) nema við komumst ekki heim því við vorum hvorugt með lykla og allt harðlæst.. dem Auðunn hafði farið út og læst! ósvífnin í honum! ;o) Við hentumst þá bara í heimsókn í Fjörðinn þangað til Auðunn var kominn heim til að hleypa okkur inn. Það var reyndar bara fínt....
En núna er minns bara kominn heim, búin að henda kallinum í útskriftarpartý og pára hér í nútíma dagbók sem allir geta lesið. Eins gott að skrifa engin leyndarmál hér...... Núna er bara að opna góðan bjór og bíða eftir að heyra í frænkunum (Matta og Vítaspyrnu) við ætlum sko að sletta úr klaufunum í nótt! Þannig að dagurinn minn endar ábyggilega vel! Fannst ykkur ekki gaman að fá innsýn í þennan dásamlega dag hjá mér??? :O)
Að lokum VERÐ ég að láta þetta og þetta fylgja!!!
Leiter jú gæs!

17.5.03 skrifaði Bína