Bónerfréttir
18.5.03  
Góðan daginn!
Hvað segir pakkið þá vona að þið hafið skemmt ykkur vel í gær, sá mér ekki fært um að koma með var allt of þreytt (eins og vanalega). Komum heim í gær rúmlega 10 eftir skemmtilega sundferð með G.B og B.H á Selfossi og grill í bústaðnum hjá Nonna og Berglindi. Fórum alveg úr þvílíkt góðu veðri héðan úr Reykjavík í skítakulda og rigningu, en maður er svo mikið hörkutól að maður lét sig hafa það. Ég held að Siggi sé en að jafna sig eftir gærdaginn því þegar strákarnir eru saman er mjög mikið för hjá þeim og yfirleitt eru þeir frekar háværir og ég held að greyið Siggi hafið bara strax orðið þreyttur við tilhugsunina um hvernig þetta eigi eftir að verða þegar það eru komin tvö.
Vona að stelpurnar hafi skemmt sér vel í gær á djamminu og að allt hafi gengið vel hjá Önnu ;o). Ætla hins vegar að fara drífa mig að sinna drengnum þar sem honum finnst ekki mjög gaman þegar mamma hans er í tölvunni.
chao

18.5.03 skrifaði Linda