Bónerfréttir
19.4.03  
Well hello
Ætlaði nú bara aðeins að segja ykkur að nú var ég að koma úr sundi og það var 22° hiti á Neskaupsstað þar sem við skelltum okkur. Ég get svarið það þetta var eins og að vera út á Spáni það bærðist ekki vindurinn og ég átti hálf erfitt með að anda en asskoti var þetta nú gott að fá smá sól og hita í kroppin svona snemma. Annars er bara allt gott að frétta ég stækka nú voða lítið finnst mér þó svo að sigga finnst ég stækka með klukkutímanum. Er ekki búin að vera eins dugleg að læra eins og ég ætlaði mér að vera en nú fer ég að taka mig á og klára þetta áður en ég kem suður annað er nú ekki hægt. Annars óska ég ykkur öllum gleðilegra páska og vona að þið fáið jafn gott veður og ég er að fá hérna fyrir austan núna(var 18° hiti í gær) og Anna mín ég tek undir orð Matta ekki geyma páskaeggið þitt við rúmið
kveðja HB(þetta er hálf asnalegt mér finnst eins og ég sé að skammstafa Helga Björt en ekki Hörkuboner)

19.4.03 skrifaði Linda