Bónerfréttir
8.4.03  
Jæja komið þið blessaðar og sælar!
Er núna aðeins að svíkjast undan lærdómnum þar sem ég uppgötvaði að ég er bara ein heima í kvöld og ákvað að reyna freista ykkar með að fara í bíó eða á kaffihús. Annars er allt gott að frétta héðan var frekar róleg helgi var að vinna bæði föstudags- og laugardagskvöld í blómabúðina sem er búið að selja bæ ðe vei! þannig nú veit maður ekki hvort maður hefur vinnu áfram. Á laugardaginn afrekaði ég það að fara með bæði Baldvin Hrafn og Gústaf Bjarna í sund og gekk það mjög vel þangað til við fórum upp úr því þeir voru báðir orðnir mjög mjög þreyttir þar sem þeir báðir höfðu vaknað kl 6 um morguninn!! En þetta hafðist þó allt saman að lokum og Baldvin Hrafn var svo uppgefin eftri þessa sundferð að hann svaf í 2 og 1/2 tíma. Svo held ég bara áfram að fitna samt ekkert rosalega mikið þar sem ég er enn ælandi samt búið að minnka heilmikið sem betur fer og finn ég að ég er öll mikið hressari þar sem ég afrekaði á sunnudagsmorgun að taka allt í gegn og baka skúffuköku og vöfflur sem hefur ekki gerst í háa herrans tíð(ef einhvern tíman). Á föstudagsmorgun ætlum ég og Baldvin Hrafn að skella okkur í páskafrí austur á Eskifjörð og hlakkar mig mikið til að komast í sæluna. Eyrún og Jobbi kíktu í pínu heimsókn til okkar í gær þar sem þau voru að lána okkur (eða Sigga) bókina fyrir verðandi feður og hlakka ég mikið til að sjá hvort hann á eftir að lesa hana þar sem hann hefur ekki lesið bók síðan eða ég held bara aldrei. En allavega nóg raus í bili verð að snúa mér aftur að UTN lærdómnum.

8.4.03 skrifaði Linda