Bónerfréttir
28.4.03  
Já já, þetta er náttlega bara ekki hægt!!
Þvílíkt búið að vera að gera hjá skvísunni síðustu daga, afmæli og skírn og það á aðeins fjórum dögum!! Geri aðrir betur ;-) Prinsinn búinn að fá nafn, Emil Gauti. Hann var svo góður í skírninni, lét prestinn aðeins heyra það en það var voða lítið. Nú geta foreldrarnir aðeins slakað á (og kannski dottið í alla afgangana, nóg var víst af þeim).
Enívei, mér finnst sumt fólk vera allt of latt við að skrifa hérna (taka það til sín sem eiga ;-)). Það erum við Bína og Helga sem skiptumst á hérna, já og Eyrún á eitthvað líka!! Kommon stelpur, látið nú ljósið skína!! :-)
Kv, SWB

28.4.03 skrifaði Matthildur