Bónerfréttir
6.4.03
Howdy!!
Ma-ur er bara orðinn íslendingur aftur!! Það er nú svo sem ágætt að vera komin heim, hitta pakkið og þess háttar :-) Maður var orðin svolítið þreyttur á öllu labbinu, erum gengnar upp að hnjám (hef sjaldan lent í öðru eins). Verslað óhemju magn af dóti og drasli, þurftum að stappa ofan á töskunum í gærkvöldi (vorum orðnar frekar stressaðar yfir að koma öllu niður þar sem búið var að loka búðum og ekki hægt að redda tösku!!! En þetta reddaðist allt auðvitað (hefði kannski átt að versla aðeins meira!!! :-)) Þar sem gistingin okkar var svo nálægt Ströget löbbuðum við alltaf þangað og auðvitað kíkt í allar búðir, aftur og aftur og aftur...... Nú verður bara lagst upp í sófa með tærnar upp í loft og blöðrum og hælsærum leyft að jafna sig!!
Anyway, höfðum það þvílíkt gott í baunalandi, var alveg frábært og nú tekur bara vinnan við ofl álíka hversdagslegt!!
Og já já, nokkrir svíar urðu á vegi okkar, frekar fyndnir. Þeim fannst alveg ótrúlegt að við værum frá Íslandi, aldrei hitt Íslendinga á ævinni. Þetta voru einhverjir menn í buisnessferð að skoða danska vegakerfið!! Einn var alger kúlisti, 65 ára með keðju um hálsinn og hneppt frá. Hann tók okkur í sveiflu og höfðum við ekkert í hann. Hann mætir víst á Harley Davidson hljóli í vinnuna! Hinir voru svo mest að fræðast um ísland, hvort við hefðum háskóla, þekkt vörumerki og fl fáránlegt. Þeir skildu ekki að við ætluðum bara að fara heim og VERA þar, á ÍSLANDI!!!
Jæja nóg komið af blaðri, bæ þe vei flott síða orðin hjá þér Bína mín, orðin stór glæsileg!!
6.4.03 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka