Bónerfréttir
14.4.03
Howdy!!
Gott að heyra það, Helga, að þú hafir fengið svona grjónapúða á vöðvabólguna :-) Og þér líður vonandi betur, Björninn farinn að nudda þig og alles, þetta er greinilega allt að koma!! ;-)
Annars er ekkert að frétta héðan að venju, bara vinna, sofa og glápa á imbann. SPENNÓ!!!!!! Jæja bið að heilsa öllum sem ég þekki, ótrúlega langt síðan ég hef séð nokkurn af mínum vinum :-( Linda er náttlega fyrir austan svo hún er afsökuð og svo auðvitað Helga en þið hinar (nema þið séuð fyrir austan eða norðan) hafið enga afsökun!!! (Reyndar var það ég sem komst ekki til Berglindar um daginn!!) Kannski ég ætti að fara að huga að þessum saumaklúbb sem ég átti að halda í janúar (held ég), hver er svo rolan!!
Well, heyrumst!!
14.4.03 skrifaði Matthildur
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka