Bónerfréttir
10.4.03  
Hæ hæ!
Vá hvað það hlýtur að vera gott að getað knúsað svona sjálfan sig í tíma og ótíma, langar í svona langar hendur!!!
Annars er ekkert að frétta héðan, bara að hangsa í tölvunni þegar ég á að vera að fara að sofa. Ég var nefninlega að koma af næturvakt og er dauðþreytt en nenni ekki að skríða upp í!! Held það sé nú bara eitthvað að mér, þetta hefur aldrei komið fyrir áður :-) Annars var næstum því búið að keyra á mig áðan, e-r sem svínaði fyrir mig þegar ég var að fara á bensínstöðina og var ég með hjartað í brókunum í góða stund á eftir. Ég bara rétt náði að snarhemla! Hel....., djö.... ökuníðingar!! En minns og bíllinn minns erum heil heilsu svo þetta endaði allt saman vel.
Með þessari sögu ætla ég að enda pistilinn minn í dag, verið nú góð við hvort annað. Þar til næst, lifið heil!! :-)

10.4.03 skrifaði Matthildur