Bónerfréttir
8.4.03
Góðan daginn! Var að henda bekknum út, búin að fara yfir heimavinnuna og alles og þá er það bara fundur eftir mat, slamm! mín komin í hálfgert páskafrí. Ljúfir svona rólegir dagar, ha..... Þema byrjar á morgun og verkefnið sem ég og Anna Stína erum með er: Leikir úti í frímínútum. Það þarf að kenna þessum krökkum að leika leiki úti í frímínútum svo þau gleymi sér ekki í að stríða, lemja og berja! Þetta var ekki svona þegar við vorum í skóla. Verst að það spáir ekkert frábæru veðri.... en bara upp með gallann og út í leiki brjálað fjör. Ég er alveg í algjöru bjartsýniskasti í dag. Veit ekki af hverju. Ekki er veðrið að sanna sig. Lífið er bara yndislegt mússí múss! Jæja ætli ég hætti þessu ekki núna, er bara að reyna að standa undir kröfum Matta skratta (sem talaði bæ ðe vei við mig i 1 og hálfan tíma í símanum í gær- ég varð náttúrulega að heyra ferðasöguna, geðveikt gaman hjá þeim!!).
ðagnaÞ lit tsæn....... sí jús ;o+
8.4.03 skrifaði Bína
0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Til baka