Bónerfréttir
4.4.03  
Þetta er einmitt það sem ég hafði hugsað mér, í sambandi við linkana... Það kemur svona með kalda vatninu...:)
Heyrði í gellunum í gær og viti menn! Þær voru komnar á séns með einhverjum Svíum!!!! Þær eru nú alveg ótrúlegar og eru alveg að standast undir mínum væntingum! Maður verður nú aðeins að höstla fyrst maður er í útlöndum og á lausu...
Er allavega fegin að það sé komin helgi og ábyggilega ekki sú eina. Við ætlum að elda góðan mat í kvöld og svo á morgun ætleiðum við Svöluna því Valgeir er að fara að fermast og þar með má enginn verða veikur, slappur eða sýna nokkurt slen.... Mútta stendur með pískinn og þrælar aumingja Lilju áfram í bakstrinum og hver á þá að sjá um krakkann nema ég? Pabbinn að fara á fjöll og allt......

4.4.03 skrifaði Bína