Bónerfréttir
11.3.08  
well hello hello
Kraftaverkin gerast enn....mín bara að skrifa inn á bónerinn. Sá að Bína var nú aðeins búin að reyna blása lífi í þessa blessuðu síðu okkar ákvað ég að prófa aðeins þar sem mér loksins tókst að signa mig inn til að geta bloggað. Hvað getur maður annars sagt......held ég sé með lélegustu bloggurum sem fyrirfinnast og hef aldrei neitt að segja. jú nema hvað haldiði, ég fór á námskeið í gær sem er um sjúkdóminn minn bæði fræðsla og hvernig hægt er að lifa sem best með honum. Svo í lokinn er farið að tala um reykingar og einhver ruglingur hefur orðið þegar ég lenti á spítalanum og fékk þær upplýsingar að ég mætti alls ekki reykja, því í eina skiptið í allri læknisfræði hafa reykingar jákvæð áhrif og það er akkúrat sjúkdómurinn sem ég er með. Ekki að þeir væru að mæla með reykingum þvert á móti tóku auðvitað fram að það væru miklu fleiri neikvæðir þættir við reykingar. Og fólk sem hefur aldrei reykt á alls ekki að prófa það hefur held ég mjög litla virkni fyrir þá. En það hafa komið tilfelli þar sem fólk fer bara aldrei í lægð með sjúkdóminn ef það hættir að reykja og sumir þurfa, til að halda sjúkdómnum niðri að reykja 3 sígarettur á dag.

Annars er nú allt með feldu hér maður er bara farinn að vera spenntur fyrir Danmerkurbrúðkaupið auðvitað og ekki leiðinlegt að við séum öll að fara saman og væri rosalega gaman ef við myndum kannski ná að vera saman eins og einn dag í Köben, fá okkur kannski að borða og fara á smá rölt. Annars erum við Berglind í smá varnræðum með sumarhúsið sem við vorum búin að finna, vorum ekkert smá ánægðar með, góðum stað, flott hús og á góðu verði þannig við auðvitað pöntum það, nema hvað þegar við fáum mail um greisluna þá er það miklu dýrar en tekið var fram á heimasíðunni.

jæja snúllurnar mínar fyrst ég get hent svona eins og einni færlsu hér inn ættu þið að geta það líka ;o)

11.3.08 skrifaði Linda

1 Ummæli:

  • Klukkan 10:34 AM, sagði Anonymous Helgie Bí

    Já SÆLL!!!! Bara LÍF hérna!!! Annars reyndi ég að komast inn á bloggerinn um daginn því NÚ ætlaði ég sko að skrifa svaaaaka pistil... EN nóbb- mér var bara ekki hleypt inn- lok lok og læs... þannig að ég varð að gefast upp mér til mikillar gremju get ég sagt! Annar bara allt gott héðan- auðvitað MIKIÐ að gera eins og hjá öllum...reyna að læra á fullu og svo jú auðvitað PLAAAANA! Hlökkum ekkert SMÁÁÁ til að sjá ykkur öll hérna í DK- allir búnir að skrá sig þannig að við erum SÚÚÚPER glöð! Takkkkk fyrir það elsku snúllurnar mínar- þið eruð BESTASTAR!! Well þarf víst að fara að gera e-ð...er með H&H í páskamat í kvöld þannig að nóg að stússa. Hafið það alltaf BEST elskurnar... luv jú yours HB

     

Sendu inn athugasemd

<< Til baka