Bónerfréttir
6.4.07
ÞÖGNIN ROFIN!!
Jahérna- mér er farið að lítast svo illa á bloggþögnina MIKLU að ég ætla að láta verða að því að kalla *haaaaallóóó* og vonast til að e-r svari...haha! Hvað er eiginlega að frétta af Íslandi? Eru allir við heila heilsu? Er fólk alveg hætt að nenna að kíkja hingað inn, eða eru allir svona HRIIIIKALEGA busy?? Hvað er að gerast og hvað er fólk að bralla?? Allavega er ÉG alltaf í góðum gír- við ágætis heilsu- kíki enn hingað inn og er alltaf að "skólast" eeeen er jú eins og eflaust margir aðrir í dááááásamlegu páskafríi núna:) Er jú að reyna að lesa smá í fríinu, en ætla nú líka bara að halda áfram að njóta þess að geta verið heima og haft það pínu næs. Annar styttist jú í próf þannig að það er eins gott að halda bókunum á lofti maður! Byrja í prófum 6.júní og er búin 15. þannig að þessu er lokið frekar snemma í ár svona miðað við oft áður. Kem eflaust e-ð heim að vinna í sumar og svo jú auðvitað í BRÚÐKAUPIÐ maður;) Rooooosalega hlakka ég til þess- verður geggjað ... ég EEEEEELSKA brúðkaup! Ss. strax farin að hlakka miiikið til og vona að við náum að bralla margt skemmtilegt saman í sumar! Talandi um skemmtilegt að þá er jú næst á dagskrá að skella sér með Begz að hitta Beyonce vinkonu okkar...sjettörinn hvað það verður gaman- vantar þó bara ykkur hinar elskurnar:( (efl. enn hægt að redda miðum þó;)) Hlakka auðvitað roooosa mikið til að hitta þig Berglind mín- snilld að þú nærð að koma með mér á öl ad libitum og allez;)- nú er bara að biðja fyrir GEGGJUÐU veðri og þá verður þetta varla betra:) Jæja..ætla að fara að hætta þessu blaðri og reyna að koma mér í lestrargírinn! Vona að þið eigið allar yndislega páska og hafið það sem allra allra best. Plííííz látið í ykkur heyra hérna svo ég geti andað léttar..haha (ég veit að þið kíkið hingað inn..múhaha) Love you guys...kizz og knúúúúz HB
6.4.07 skrifaði Helga Björt
4 Ummæli:
Klukkan 2:45 PM, sagði
Matthildur…
Hæ skvís... vááá hvað það er gott að einhver lífgaði síðuna við, hehe. Ég kíki alltaf hingað inn (maður er bara latari við að skrifa eitthvað ;)). Díses hvað það er langt síðan ég hef heyrt í þér (verð að fara að vera duglegri að vera msn-inu ;))... Gott að heyra að allt gengur sinn vanagang í Dk, það gerir það líka hér á Íslandinu.
Loksins eitthvað farið að vora, oooohhhh hvað ég hlakka til sumarsins :D
Knús -MS
Klukkan 6:30 PM, sagði
Bína…
hey hon... já mig hefur oft langað að tjá mig hérna... maður bara gefur sér ekki tíma ;o/ þarf að fara að bæta úr því
Klukkan 11:15 AM, sagði
Berglind…
Hip hip HÚRRA!! Ég reyndi um daginn að skrifa e-ð hérna inn en þá var e-ð vesen að logga mig inn svo ég hætti við. Hefur eflaust ekki verið neitt svaka mál en... nóg til að stoppa mig:) Ég get ekki BEÐIÐ eftir að hitta þig;)Það verður pottþétt alveg svakalega skemmtilegt hjá okkur!!!
Klukkan 1:58 PM, sagði
hb…
Hahaha...hæ elskurnar! Gott að heyra að þið eruð SPRELLLLL-lifandi og búnar að HUGSA um að skrifa hér inn... en ungu dömur- það er víst ekki nóg! Koma svo taka aðeins á því og láta heyra í sér;) Treysti á að fólk fari aðeins að æfa fingrasetninguna og láti "slúðrið" flakka:) haha- æj annars bara gott að þið hafið það gott dúllurnar mínar:D -ég sit hérna inni og les tannholdsfræði í 20 stiga hita og SÓL- búúhúú...algjört rögl! Well- langaði bara að segja góða helgi sykurpúðar og hafið það BEST:) kiss kisssss yours HB
Sendu inn athugasemd
<< Til baka